Fólk nennir ekki að vinna

Það er nú bara þannnig að þegar maður opnar fréttablaðið/mbl/dv er endalaust verið að bjóða vinnu hér og þar.
Fyrir stuttu í dv var grein frá fyrirtæki sem leitað hafði að starfskrafti í rúman mánuð og örfá símtöl komu til þeirra.
Þó ég sé ekki í mikilli vinnu sjálfur vildi ég óska að ég hefði meiri vinnu, en Það hentar bara ekki í skóla osfr.
mbl.is Atvinnuleysi eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta er nú svolítið mikil einföldun hjá þér. Málið er það að bæturnar eru um 150þús. það gerir 118 til 121 í vasan hjá þér eftir skatta og gjöld. þetta eru sömu laun og margir eru að bjóða og þá áttu eftir að koma þér til vinnu og það kostar þig svona 10þús í bensín á mánuði þannig að fólk sér enga skynsemi í að vinna nem þá bara svart. þannig liggur nú í þessu oftast..

óli (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 00:40

2 Smámynd: GunniS

ég veit ekki hvort ég ætti að rífast við einhvern fæddan 94. en ég veit ekki hvort þú nærð að meðtaka hvað er að gerast þegar atvinnuleysi fer úr 2000 og upp í 12.000 á um 3 mánaða tímabili eins og gerðist kringum áramótin 2008 / 2009.

svo ættiru að prófa að fara að heiman, og reyna að lifa af 140.000 útborgað á mánuði, held þér myndi bregða við þá lífsreynslu. 

GunniS, 13.12.2011 kl. 03:38

3 Smámynd: Júlíus Valdimar Finnbogason

Ég verð bara að komment hjá þér Óli. Þetta með að fólk vinni svart.

Hvenær ætla Íslendingar að hætta að vinna svart? Þetta hefur verið endalaust öll þau ár sem ég hef verið á atvinnumarkaðnum eða í 20 ár.

Endalaust verið að bjóða manni svarta vinnu, borga undir borðið o.sfrv og á sama tíma er sama fólk að blóta viðskiptamönnum fyrir það að þeir eigi svo mikla peninga og já fullyrða að þeir séu stolnir án þess að vita nokkuð um það.

Siðleysi er allt í einu orðið ólöglegt í augum margra Íslendinga en það er mikill miskilningur og sá sem heldur því fram ætti einfaldlega ekki að reyna að ræða málin enda hefur sá hinn sami ekki vit á því sem að hann/hún er að segja að mínu mati því siðleysi er ekki sama og stuldur, ekki flókið.

Málið er það að það er enginn munur á því að stela 1000 kr eða 1 milljón og þeir sem vinna svart eru að stela frá hinum í samfélaginu með því að borga ekki skatta.Stuldur er stuldur sama hver upphæðin er og ekki rugla stuldi saman við siðleysi;).

Ég hef búið í 4 löndum fyrir utan Ísland og hef því ágætan samanburð á því hvað gerist á Íslandi og annarsstaðar og mín reynsla er sú að það er ekkert landa(þeirra sem ég hef búið í) sem er eins rosalega mikið fyrir að vinna svart og ekki borga skatt og á sama tíma grenja yfir öllu öðru eins og Ísland. Volæðið er það sem er að fara með þessa þjóð. Persónulega mundi ég vinna hvað sem er þó það væri það sama og atvinnuleysis bætur í stað þess að sitja heima og berja í brjóst mér og leggjast í sjálfsvorkun.

Ég hef unnið störf sem ég hef ekki haft áhuga á enda mundi það bara fara með mig að hanga heima og gera ákkúrat ekki neitt.

Mér er sama þó Jóhannes sé einungis 21 árs enda mikið til í þessu hjá honum og já líka mikið til í ykkar rökstuðningi um lágar bætur en ekki segja það skynsemi að vinna svart. Það er að mínu mati algjört bull og ábótavant að fólk tilkynni slíkt inn enda um skattaþjófnað að ræða.

Algjör óþarfi að tala niður til þeirra sem yngri GunniS því við sem eldri erum vitum ekki alltaf betur og það er bara eins og það er hvort sem þér líkar betur eða verr.

Júlíus Valdimar Finnbogason, 13.12.2011 kl. 07:27

4 Smámynd: Jóhannes Gísli Eggertsson

@GunniS

Ég hef búið sjálfstætt, bæði hér á landi og svo í noregi.

Veit ég hef kannski ekki eins mikla reynslu og þú, en kannski hef ég reynslu á öðru sviði.

Síðustu ár mín hafa veri mjög klunnaleg, ég gerði mörg feilspor og þrátt fyrir að hafa lært af þeim á ég margt eftir ólært.

Ég viðurkenni það að ég klúðraði málunum minum í noregi og fluttist þaðan hingað til íslands, ég bý tæknilega séð ekki inná foreldrum mínum og er að leita mér að nýju leiguhúsnæði, Þrátt fyrir það að ég er með 5 klst fasta vinnu á viku þýðir það ekki að ég vinni ekki meira en það, ég hef stundum verið að fá sirka 200 þúsund á mánuði í laun fyrir þá hluti sem ég dunda mér við.

Ég er kannski bara 17 ára gamall, en 17 ára einstaklingur sem rétt er að skríða í 18. aldursár ætti að prufa þetta og sjá hvort hann höndli það.

@Júlíus

Þakka frábært comment, vill samt taka það fram að ég er 17. ára en ekki 21. árs, þakka samt hrósið :).

En að lýsa siðblindu getur orðið erfitt, en ég hef upplifað hana, hún kemur sterkt inn ef maður fer vitlausa leið í lífinu.

Siðblinda er ekki ólögleg heldur hvað maður getur gert útfrá henni.

Vona þessi svör hafi verið ykkur til ánægju :)

Jóhannes Gísli Eggertsson, 14.12.2011 kl. 01:03

5 Smámynd: Matthildur Jóhannsdóttir

Það er alltaf öllum erfitt að setja sig í spor annara. Þar kemur aldur ekki frekar áföll sem einstaklingurinn hefur orðið fyrir í lífinu.

Allir mínir fyrrum vinnufélagar og ég erum atvinnulaus, nema þau sem fóru erlendis eða í skóla. Nú eru þau öll að detta af atvinnuleisisbótum um næstu mánaðamót nema ég.(vegna fæðingarorlofs)

En mér var hennt úr af bótum fyrir ári síðan vegna innsláttarvillu og það tók 4 mánuði að leiðrétta það. Ég veit ekki hvað margir hafa reinslu af því að fá án viðvörunar ekki útborgað og þegar maður er orðin 50+ þá er ekki lengur sá möguleiki að skreppa í mat til mömmu og pabba.

Ég er með 2 háskóla gráður og verið bæði kennari,  farastjóri,  og aðalbókari og unnið við hönnun frá smáhlutum til húsa, en samt er ekkert að fá. Auðvitað er það mismunandi eftir ábyrgð og aðstæðum hvað fólk þarf til framfærslu. Ekki misskilja að allt sé erfiðara þegar maður verði eldri. Því þegar maður er eldri þá hefur maður maður gamla sigra til að halda uppi sjálfsvirðingunni sem maður hafði ekki þegar maður var yngri.  Margur maðurinn mun segja þér að það opni alltaf nýjar dir þegar einar lokast og það er rétt að hluta til, því það má alltaf opna dir á ísskápnum og ná sér í eitthvað sem lætur mann horfa bjartari augum frammávið.

Matthildur Jóhannsdóttir, 14.12.2011 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband